um fundarstjórn.
Forseti. Ég kem hingað upp fyrst og fremst til að spyrja út í fréttir sem komu úr þessum stól þess efnis að gera ætti hlé á þingfundi fyrir nefndarfundi. Við vorum á fundi áðan, þingflokksformenn, þar sem þetta kom hvergi fram, var ekki rætt að þetta yrði hluti af dagskrá dagsins. Ég bið forseta að staðfesta hvort svo sé og þá um leið hvenær gert sé ráð fyrir hlé á þingfundinum og gefið svigrúm fyrir nefndarfundum. Þetta er svolítið sérstakt, finnst mér.
Síðan langar mig að ítreka það, sem ég kom beint eða óbeint inn á í ræðu minni hér áðan, að yfir standa — eða eiga að standa yfir, þeim hefur reyndar verið frestað eða slitið í bili — viðræður um þinglok. Ef stjórnarmeirihlutinn heldur að þetta útspil þeirra í nefndum, að taka mál út órædd eða illa unnin, sé til þess fallið að auðvelda þau samskipti sem nú eru nauðsynleg ættu reynslumiklir menn að vita að svo er ekki. Ég held hins vegar að það sé mikilvægt að við höldum áfram þeim viðræðum, að menn taki aðeins til sín þau varnaðarorð sem hér hafa verið sögð, þeir sem stýra nefndum eða meiri hlutinn í nefndum alla vega, og gefi mönnum færi (Forseti hringir.) á að semja um þinglokin án þess að hér sé allt sett í uppnám. Þetta er ekki til þess að leysa þau mál.