um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Með miklu valdi kemur mikil ábyrgð, sagði Ben frændi í Kóngulóarmannasögunni eftir Stan Lee hér um árið. Meiri hlutinn tekur sér valdið en hingað til hefur ekki borið mikið á því að meiri hlutinn axli ábyrgð. Minni hlutinn ber líka ábyrgð, aðallega gagnvart aðhaldi við meiri hlutann því að hann hefur ekki sinnt því hlutverki mjög mikið og almennt séð er ákveðin samstaða hér inni í rauninni um að aðhaldshlutverkið sé minni hlutans, þó að það eigi að sjálfsögðu að vera alls þingsins. Þess vegna er það svo mikilvægt þegar meiri hlutinn beitir meirihlutavaldi sínu til að koma í veg fyrir aðhald og góða lagasetningu. Þetta er ekki stormur í vatnsglasi. Við erum með samþykkt frá því að við kláruðum síðast umræður um þinglok eða þinghlé varðandi það (Forseti hringir.) hvernig átti að afgreiða þingmannamál. Það hefur ekkert gerst í því, ekki neitt.