um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að bera af mér sakir. Það var tekið sérstaklega fram af formanni velferðarnefndar að þessir þrír þingmenn sem sætu í báðum nefndum, í atvinnuveganefnd og velferðarnefnd, hún sagði það áðan, væru með valdníðslu og ofbeldi. Ég get lýst því ofbeldi sem ég hafði uppi í upphafi fundar í gær þegar ég lagði fram nefndarálit um málefni innflytjenda sólarhring fyrr. Það var tekið út með samþykki allra sem voru á fundinum og líka þeirra sem voru á því. Ég ber af mér sakir og mér finnst þetta alveg með ólíkindum. Ég vil bara minna á að það er formaður nefndarinnar sem fer með dagskrárvaldið. (Forseti hringir.) Af hverju var ekki búið að setja lyfjamálin þá á dagskrá til umræðu? (HallM: Hún var að tala vel um þig …)