um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég hef fullan skilning á því að stjórnarmeðlimir vilji frekar að þetta bíó eigi sér stað áfram inni í nefndunum en það er einfaldlega nóg komið. Hér hefur vörn stjórnarliða verið að þau ráði. Það er ekki dregið í efa en ég legg til að forseti beiti sér fyrir fullorðinsfræðslu meðal tiltekins hluta stjórnarþingmannanna um að það er ekki það sama að fara með völdin og að forðast málefnalega, pólitíska umræðu. Við vitum ekkert, svo ég svari því sem fram hefur komið hér, hvort pólitískur ágreiningur er um afgreiðslu lyfjalaga eða ekki eða títtnefnt nefndarálit sem kom klukkan hálftólf í dag vegna þess að við höfum ekki haft tíma til að fara í gegnum það.
Mig langar til að árétta að þetta þarf ekki að vera svona. Fá mál eru í eðli sínu pólitískari en samgöngumál og umhverfismál. Samt tekst þar í nefnd að leiða mál til lykta. Þar er umræðan pólitísk. Hún er hörð, hún er málefnaleg, það eru fleiri en eitt minnihlutaálit, þau eru tvö orðin, held ég. Þar eru fyrirvarar, það er tekist á, þar er pólitík (Forseti hringir.) en ekki einber ómerkilegheit. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)