um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Þetta er mjög áhugaverð umræða og ég ætla að leggja það til við forseta Alþingis að hann geri hlé á þessum þingfundi til að útkljá málið.
Það sem snýr að okkur í velferðarnefnd og mér finnst hvað mikilvægast er að nefndarálitið kom núna klukkan hálftólf. Síðan var okkur sagt að stefnt væri að úttektarfundi á eftir. Ég get með engu móti séð hvernig hægt er að halda því fram að það séu eðlileg vinnubrögð. Ég er búin að renna yfir álitið og ég hef fjölmargar spurningar og fjölmargt sem ég myndi gjarnan vilja fá betri útskýringar á. Það er ekki einu sinni, til að klára þetta, búið að segja að nefndarálitið sé klárt því að það á enn þá eftir að laga það.