150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:12]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég er formaður hv. atvinnuveganefndar og þar er samstarfið mjög gott. Í síðustu viku var ég hlaðin lofi úr þessum ræðustól og fór hjá mér og kinkaði kolli og var bara hálffeimin. (JÞÓ: Þú gerðir gott.) Takk fyrir það, (Gripið fram í.) hv. þm. Jón Þór Ólafsson. Þess vegna undrar mig þessi læti hérna út af máli í velferðarnefnd sem hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson hefur unnið mjög vel með allri nefndinni og er tilbúið til að taka út, að það sé verið að gera stóran ágreining úr því. Mér finnst líka mjög slæmt þegar hv. þingmenn hér inni saka samþingmenn sína um ofbeldi og valdníðslu. Ég held að við séum ekki á góðum stað miðað við þá umræðu sem við höfum átt um þau mál almennt í þjóðfélaginu, varðandi einelti og annað því um líkt, og það er gjaldfelling á þeim hugtökum að nota þau í þessu samhengi þegar pólitískur ágreiningur er um (Forseti hringir.) hvort mál séu tilbúin til úttektar. (HKF: Það er ekki pólitískur ágreiningur, það er vandamálið.)(HallM: Það var engin umræða.)