um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir kallar umkvartanir okkar storm í vatnsglasi og talar um að þetta verklag sé í samræmi við þingsköp. Hún nefnir einnig að við treystum okkur ekki til að vinna vinnuna okkar en það sem við erum að biðja hv. meiri hluta um er að vinna vinnuna sína, að fullvinna mál áður en þau eru tekin út úr nefnd.
Hv. þingflokksformaður Vinstri grænna, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sagði að oft væri ágreiningur um hvort rannsókn væri lokið og ekkert óeðlilegt við að sá ágreiningur væri fyrir hendi. Ég vil segja að það er auðvitað lágmark að nefndum gefist færi á að ræða málalok efnislega. Það er í starfsreglum fastanefnda. Þetta eru þær verklagsreglur sem við eigum að fara eftir í nefndunum.
Hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir sagði að formaður hv. velferðarnefndar færi með dagskrárvaldið. Það er ekki borin meiri virðing fyrir dagskrárvaldi hv. þingkonu Helgu Völu Helgadóttur en svo að það hefur endurtekið verið tekið af henni (Gripið fram í.) til þess að troða út stjórnarmálum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það er nú allt dagskrárvaldið sem hún fær að halda.