150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:16]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Ég fann mig knúinn til að koma og bæta við tveimur punktum. Annars vegar er kannski bæði eðlilegt og jákvætt að við á Alþingi temjum okkur að hrósa fyrir það sem er vel gert og er jákvætt að það hafi verið gert. En fólk skal ekki undra ef það er sömuleiðis skammast yfir því sem er illa gert. (Gripið fram í: Rétt.) Þarna liggur eðli máls. (Gripið fram í.) — Ég veit ekki hvort ég má halda áfram með ræðuna mína.

(Forseti (SJS): Svo gjarnan vildi forseti það að ræðumenn hefðu betra hljóð.)

Auðvitað eigum við að reyna að koma fram hvert við annað af virðingu en höfum það líka í huga að það að skammast yfir því hvernig fólk orðar hlutina er frekar kjánalegt og máttlaust ef það er ekki hægt að gagnrýna hvernig fólk gerir hlutina. Vandamálið er ekki að fólk tali á ljótan hátt heldur að fólk er stundum að gera ljóta hluti. (Gripið fram í: Nákvæmlega.) Við hljótum að geta skammast hvert í öðru og hrósað hvert öðru eftir því sem við á.