150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:19]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Ríkisstjórnin virðist ekki átta sig á því núna á þessum lokametrum að húsnæðismálin eru sett aftast á dagskrá þessa þingfundar. Fyrir tveim dögum segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður stærsta verkalýðsfélags landsins, að lífskjarasamningarnir séu þegar brostnir vegna þess að ríkisstjórnin sé ekki að standa við þá, m.a. húsnæðismálin. Þingforseti setur húsnæðismálin aftast á dagskrá þessa fundar í staðinn fyrir að gera eins og við erum að biðja um, að fá þau fremst, klára þá umræðu, senda til nefndar og vinna málið áfram. Af hverju setur ríkisstjórnin málið aftast? Til að kenna þingmönnum sem þurfa að ræða í öðrum málum um að tefja það? Nei. Það á að setja það fremst, annars er það fyllilega á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar og þessa þingforseta, þingforystunnar, að tefja mál sem er nauðsynlegt til að lífskjarasamningarnir geti haldið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

Svo ætla menn að reyna að kenna hjúkrunarfræðingum um, þeir megi ekki fara umfram lífskjarasamningana, (Forseti hringir.) annars fari allt í klessu. Þessu hefur verið vísað á bug af verkalýðsforystunni og sagt að standist ekki.