um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði að segja nákvæmlega það sama og hv. þm. Jón Þór Ólafsson sagði hér en hann sagði það bara miklu betur en ég hafði ætlað að segja það. Þá vind ég mér að því sem ég sagði áðan, að með miklu valdi kemur mikil ábyrgð, og með miklu valdi er hægt að taka sér mjög mikla ábyrgð, en það þarf að taka hana. Meiri hlutinn hefur ekki verið mjög fús til að axla ábyrgð. Á sama hátt verður virðingin að byrja hjá þeim sem hafa valdið. Það er þaðan sem viðleitnin verður að koma. Þegar það er ekki gert, það er engin viðleitni frá þeim sem hafa valdið og eiga að axla ábyrgðina, er samstarf mjög erfitt af því að tilfinningin er sú að verið sé valta yfir þá sem hafa ekkert um það að segja. Það er á þeim nótum sem við erum að reyna að (Forseti hringir.) biðla til meiri hlutans, þeirra sem hafa valdið og geta beitt því, að gera það af virðingu.