um fundarstjórn.
Forseti. Það er svo merkilegt, miðað við að vera á vinnustað sem byggir á samskiptum, hvað við erum á stundum alveg hróplega og áberandi léleg í þessum sömu samskiptum. Ef það væru eðlileg samskipti á þessum vinnustað og góð upplýsingamiðlun, í stað þess að henda nefndarálitum fram á síðustu stundu og þvinga í gegn illa ræddum og illa unnum málum, myndum við vinna sameiginlega að sem bestri niðurstöðu þingi og þjóð til sóma. En við sjáum það því miður ekki. Það er verið að leggja fram nefndarálit sem eru órædd og ókláruð. Í atvinnuveganefnd er til að mynda ekki efnislegur ágreiningur, herra forseti, heldur höfum við í minni hlutanum áhyggjur af því að það sé einfaldlega ekki búið að ræða málin nægilega vel.
Herra forseti. Ég hvet þig til að gera hlé á þessum fundi og reyna að liðka fyrir betri samskiptum á þinginu, (Forseti hringir.) enda er það á ábyrgð forseta að leysa úr því.