um fundarstjórn.
Herra forseti. Þessi umræða hefur farið allvíða og ýmislegt verið sagt. Ég mun eftir örfáar mínútur gera það að tillögu minni með tölvupósti til formanns hv. velferðarnefndar að nefndin sleppi því að halda fund í dag en haldi í staðinn fund á sunnudaginn eins og formaðurinn bauð á fundi nefndarinnar í gær. Það megi verða til þess að nefndin geti, eins og hefur verið kallað hér eftir, rætt málið betur en ella væri og vonandi komist að sameiginlegri niðurstöðu.
Ég vil hins vegar taka það fram að ég hef ekki orðið var við ágreining í nefndinni út af þessu máli. Ég hef lagt mig allan fram um að vinna málið vel og ég veit ekki betur en hv. nefnd hafi komið öll að því máli og tekið fullan þátt í því og gert það vel.