150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:24]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Þetta er áhugaverð umræða eða kannski öllu heldur sérstök, að hlusta á meiri hlutann mæla þessu vinnulagi og verklagi bót. Ég verð að viðurkenna að það hefur verið áhugavert sem nýr þingmaður að kynnast þessu verklagi. Eitt getur maður sagt að sé afstaðan til minni hlutans og virðingin fyrir minni hlutanum, annað er kannski, ef það skortir upp á virðingu fyrir minni hlutanum, virðingin fyrir Alþingi, virðingin fyrir hlutverki Alþingis og virðingin fyrir lagasetningunni. Við vitum öll að hún getur aldrei orðið góð þegar mál fá ekki tíma til að þroskast og dafna, þegar umræðan fær ekki að eiga sér stað og mál eru tekin út úr nefnd án þess að vera nálægt því að komast að því marki að vera orðin fullbúin sem lagasetning. Það situr dálítið í mér að það sé virkilega þannig að það skipti mestu máli, að það sé ofar öllu öðru, að keyra málin áfram, að sýna vald sitt í verki, jafnvel þó að það bitni beinlínis á Alþingi, (Forseti hringir.) bitni beinlínis á hlutverki þess, (Forseti hringir.) bitni beinlínis á lagasetningunni og bitni beinlínis á virðingu þingsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)