um fundarstjórn.
Herra forseti. Maður er farinn að kannast við þetta andrúmsloft sem maður upplifir hér á hverju vori og í jólamánuðinum ár hvert. Það er ekki laust við að manni þyki þetta svolítið viðkunnanlegt eins og aðrir hlutir sem maður kannast vel við. Þessu fylgir þó ákveðin alvara vegna þess að í annan tíma eru nefndirnar starfandi í afskaplega rólegu andrúmslofti, fá mál og lítið um að vera megnið af tímanum. Svo þegar nálgast þennan tíma upphefst þessi darraðardans að klára málin og þau koma seint inn. Við bíðum mjög lengi eftir málum frá ríkisstjórninni og síðan koma þau seint inn og síðan á að rífa þau út. Það er auðvitað algerlega, herra forseti, á ábyrgð ríkisstjórnarinnar þegar málum er svona háttað, þegar mál koma svona seint inn og vinnast svo seint að það þarf að drífa þau svona áfram í lokin.