150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:28]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Í gærkvöldi var þjóðinni boðið upp á hrikalegan sjónvarpsþátt þar sem frambjóðendur til kjörs forseta Íslands fóru hamförum. Daginn eftir er þjóðinni boðið upp á það að lýðræðiskjörið þing eyði klukkutíma í að rífast um eitthvert mál í velferðarnefnd og saki hvert annað um ofbeldi.

Virðulegur forseti. Mér finnst að við eigum að bera virðingu fyrir fórnarlömbum raunverulegs ofbeldis og ekki nota slíkt orðalag í átökum okkar. Ég hvet hv. þingmenn í velferðarnefnd til að leysa mál sín þar og ég hygg að hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson hafi komið með tillögu þar að lútandi. (Gripið fram í.) Vegna þess sem sagt hefur verið um dagskrá þessa þingfundar þá get ég ekki annað séð, virðulegur forseti, en að hún sé í fullu samræmi við hefðbundnar þingvenjur. Hér eru mál til 3. umr. fyrst á dagskrá, mál sem legið hafa í þinginu mjög lengi. Þar á eftir koma mál sem eru í 2. umr. og að síðustu kemur hér mál sem er nýtt inni í þinginu til 1. umr., þannig að mér finnst þessi dagskrá sem (Forseti hringir.) liggur fyrir mjög eðlileg. Við hefðum kannski getað hafist handa við hana fyrir klukkutíma síðan. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)(Gripið fram í.)(HKF: … formaður að fara svona …)(Forseti hringir.) (Gripið fram í: … séð að sér.)