um fundarstjórn.
Herra forseti. Það má vel vera að það sé rétt hjá hv. þingkonu Bryndísi Haraldsdóttur að þetta sé allt samkvæmt venjunni. Hæstv. forseti hefur langa reynslu og þegar maður býr að slíku getur maður verið útsjónarsamur. Eftir 37, 38 ára starf hefur maður líka allgóða vitneskju um klækina sem finnast í bókinni, eins og hv. þm. Jón Þór Ólafsson ýjaði að. Nú ætla ég ekki að leyfa mér að segja að forseti hugsi slíkt heldur einungis láta mér nægja að hugsa það. En ég velti því fyrir mér hvort það væri ekki klókara að taka mál félagsmálaráðherra strax á dagskrá og afgreiða það beint inn í nefnd vegna þess að það er mál sem liggur fyrir að er brýnt og tengist lífskjarasamningunum og við ættum a.m.k. að geta náð samkomulagi um það.