150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:32]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Virðulegur forseti. Það er gott að meiri hluti velferðarnefndar hafi séð að sér þó að það sé miður að hafi þurft heilan klukkutíma í umræður hér í þingsal til að ná þeirri niðurstöðu fram. En vegna þess að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir biður þingmenn um að bera virðingu fyrir raunverulegum fórnarlömbum ofbeldis þegar rætt er í ræðustól um framkomu sem ofbeldi og einelti þá skulum við aðeins rifja upp rannsókn á vinnustaðamenningu Alþingis sem leiddi í ljós fyrr á árinu að raunveruleg fórnarlömb þess ofbeldis sem einelti er eru 35,7% þingmanna. Það ofbeldi birtist m.a. í framkomu við minni hlutann við þinglok. Það ofbeldi birtist í því hvernig við komum fram hvert við annað. Einelti er vinnustaðamenning og vinnustaðamenningin okkar er m.a. hvernig nefndir afgreiða mál. Ef við ætlum að bera raunverulega (Forseti hringir.) virðingu fyrir þolendum þá gerum við það með því t.d. að hlusta á það hvernig mál eru afgreidd í nefndum.