um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég kem hérna upp til þess að ítreka þá beiðni að hæstv. forseti setjist niður með þingflokksformönnum og reyni að miðla málum, af því að það er hægt. Ég trúi því að það sé hægt og ég trúi því að hæstv. forseti geti það ef hann vill það.
Mig langar líka að taka undir með tveimur hv. þingmönnum, Andrési Inga Jónssyni, hv. 9. þm. Reykv. n., sem vakti athygli á þeirri alvarlegu niðurstöðu um vinnustaðamenningu á þinginu sem hæstv. forseti hefur talað ítrekað um að sé mikilvægt að bæta úr en ekki síst vil ég taka undir það með hv. þm. Loga Einarssyni að færa húsnæðismálið, sem er mjög mikilvægt mál og mjög mikilvægt að komist til nefndar, framar á dagskrána.