150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:34]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Þegar ég var sex ára settist hæstv. forseti inn í þennan sal. Virðulegur forseti hefur mikla þingreynslu. Þess vegna furða ég mig á því að við lendum aftur og aftur í þessum sporum. Af hverju getur herra forseti ekki gripið inn í og stjórnað þessu þingi með betri hætti en hér blasir við? Það er augljóslega eitthvað mikið að í tveimur nefndum vegna framgöngu stjórnarþingmanna, í velferðarnefnd og atvinnuveganefnd. Ég gat hér um áðan að ég sit í fjárlaganefnd og við störfum ekki svona. Við búum ekki við svona ofbeldi í þeirri nefnd af hálfu stjórnarþingmanna þar. Þess vegna skil ég ekki af hverju herra forseti, sem er forseti okkar allra, grípur ekki inn í og talar fyrir betri vinnubrögðum. Boltinn er hjá stjórninni, hann er ekki hjá minni hlutanum. Aftur ítreka ég það að ef málin væru í lagi þá værum við ekki að tala okkur hás hér. Aftur ítreka ég það að við erum hér (Forseti hringir.) á fordæmalausum tímum að upplifa dýpstu kreppu (Forseti hringir.) í hagkerfinu í 100 ár. Af hverju haldið þið að þjóðin hafi einhvern sérstakan smekk fyrir þessum átökum? (Forseti hringir.) Þau eru fyrst og fremst á forsendum stjórnarflokkanna sem hafa einmitt meiri hluta og (Forseti hringir.) geta breytt vinnubrögðunum, sé (Forseti hringir.) vilji fyrir slíku. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)