150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[13:36]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég get ekki annað en gert athugasemdir við þau orð hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar hér áðan að afgreiðsla mála úr þingmála úr þingnefndum hafi eitthvað með einelti að gera. Ég held að það sjái allir hvers konar skot yfir markið þetta er.