um fundarstjórn.
(Gripið fram í.) Nei, þingmaðurinn hefur þegar talað tvisvar. (JÞÓ: Fundarstjórninni er lokið, það var dagskrármál á milli …) Nei, þetta er ein fundarstjórnarumræðulota. Það talar enginn þingmaður oftar en tvisvar í henni. Það þarf að taka dagskrármál fyrir á milli til þess að menn geti aftur fengið til að tala.
Forseti vill segja í fyrsta lagi varðandi dagskrá þessa fundar að hún hefur verið undirbúin með algerlega hefðbundnum hætti og reyndar voru tölvupóstssamskipti milli forstöðumanns þingfundaskrifstofu og formanna þingflokka strax í fyrradag og aftur í gær og forseti blandaði sér síðan í þau. Til viðbótar hélt forseti fund með formönnum þingflokka í hádeginu fyrir þennan fund þar sem rædd var dagskrá dagsins og reyndar fundahaldið eftir helgi og ekki voru gerðar sérstakar athugasemdir. (Gripið fram í.) Þá var rætt um það að sjá hvernig okkur miðaði með dagskrá þessa fundar og hugsanlega bera saman bækur aftur þegar hallaði degi. Forseti boðaði það að hann myndi hugsanlega hafa samband við forsvarsmenn þingflokka aftur.
Forseti vill í allri vinsemd benda á það að umræður um störf fastanefnda og innri mál fastanefnda eiga eðli málsins samkvæmt fyrst og fremst heima á fundum í nefndunum (JÞÓ: Það var reynt.) því að þar er vettvangurinn. — Má forseti ljúka máli sínu ótruflaður af hálfu fyrrverandi varaforseta, Jóns Þórs Ólafssonar? — Að sjálfsögðu geta komið upp tilefni til að taka þau upp í salnum. Forseti er ekki að andmæla því. En það má spyrja eftir umræðu af þessu tagi, sem er nú komin á aðra klukkustund, hverju við séum í sjálfu sér nær eða þær þingnefndir sem í hlut eiga og hvort menn verði ekki að reyna í lengstu lög að leysa úr sínum málum þar eftir því sem kostur er.
Hér voru líka nefndir hlutir eins og virðing Alþingis og jafnvel sú könnun sem við gengumst fyrir um „vinnustaðamenningu“ á vinnustaðnum okkar Alþingi. Við getum líka velt því fyrir okkur hvort þau hörðu orðaskipti á köflum sem hér urðu og orðanotkun séu kannski hluti af vandamálinu sem mælist m.a. í slíkum könnunum. Við þurfum að geta átt samskipti á siðaðra manna vísu og kunna okkur hóf í orðbragði og það gildir um alla og að sjálfsögðu forseta líka, sérstaklega gilti það kannski um hann hér á árum áður. Við þurfum öll að vanda okkur ef við eigum að ná árangri í þessum efnum.
Forseti sér ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram með dagskrá og þó fyrr hefði verið. Hún er minni og léttari en til stóð vegna þess að mál sem var ætlað inn á þessa dagskrá náðu ekki út úr skjalavinnslu. Ég var bjartsýnn á, og sagði það á fundi með formönnum þingflokka í hádeginu, að við lykjum þessari dagskrá með auðveldum hætti áður en langt liði á kvöld og þannig ætti það að geta orðið. Gangi það ekki eftir þá mun forseti bera sig aftur saman við formenn þingflokka.