150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 1.

[13:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í ámátlegri tilraun til að verja afskipti sín af ráðningu Þorvaldar Gylfasonar sem ritstjóra norræns fræðatímarits um hagfræði, segir fjármálaráðherra, með leyfi:

„Þetta er ekki óháð fræðirit, heldur er því ætlað að styðja við stefnumótun norrænu ríkjanna í efnahagsmálum.“

Þessi fullyrðing er röng og ekki í samræmi við markmið blaðsins sem snýr að því að auka aðgengi að nýjum upplýsingum og rannsóknum um efnahagsmál á Norðurlöndum með birtingu ritrýndra fræðigreina. Í svari sínu viðurkennir ráðherrann líka grímulaust að honum þyki ekkert óeðlilegt við að standa í vegi fyrir frama fræðimanns með þessum hætti af því að samfélagsþátttaka og pólitískar skoðanir mannsins eru honum ekki þóknanlegar. Fulltrúum hinna Norðurlandanna blöskraði eðlilega, enda vinnubrögðin þar vonandi betri.

Ég hirði ekki um að telja upp þá flokksgæðinga sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur raðað á jötuna gegnum árin oft beinlínis vegna skoðana sinna og þótt vanhæfið hafi beinlínis lekið af þeim. Það er alvarlegt og grefur undan framgangi þeirra sem áttu störfin frekar skilið. Vont fyrir þá, stórskaðlegt fyrir samfélagið. En að beita sér gegn hæfum einstaklingi eins og gert var með þessum hætti er beinlínis óhuggulegt. Þó að hæstv. forsætisráðherra beri ekki beina ábyrgð á fjármálaráðherra hefur hún verkstjórnarvald, auk þess sem flokkur hennar ber beina ábyrgð á setu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Forsætisráðherra hefur á kjörtímabilinu ítrekað þurft að kyngja hneykslismálum og hagsmunaárekstrum samstarfsfélaga í Sjálfstæðisflokknum og horft fram hjá þeim eldri, gefið þeim ákveðið lögmæti, getum við sagt. Ég spyr því einfaldlega: Mun hún líka gera það í þessu máli eða mun þetta hafa einhverjar afleiðingar?

Að lokum minni ég á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, með leyfi:

„Ríkisstjórnin leggur áherslu á góð vinnubrögð, opna stjórnsýslu og gagnsæi […] Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórnmálum og stjórnsýslu.“

Hvernig samræmast vinnubrögð fjármálaráðherra þessu, hæstv. ráðherra?