150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 1.

[13:47]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég heyri að hæstv. forsætisráðherra gerir ekki athugasemdir við þetta inngrip fjármálaráðherra þó svo að viðkomandi fræðimaður hafi fengið boð um vinnuna. Nú hefur hæstv. forsætisráðherra starfaði í akademíunni og þess vegna væri ekki úr vegi að spyrja hvort henni finnist ekki vegið að akademísku frelsi með þeim skýringum sem hafa verið gefnar á fyrri stigum.

Hæstv. forsætisráðherra. Það er einfaldlega ekki hægt að við tínum bara svona fallegustu berin á trjánum og sýnum þjóðinni þau og fullyrðum að hér sé allt í lagi þegar bolurinn sjálfur er fúinn. Hæstv. forsætisráðherra hefur skipað merkilega nefnd um starfshóp til eflingar trausti í stjórnmálum og stjórnsýslunni sem skilaði ágætri skýrslu og þar segir m.a.:

„Stjórnvöld eru því vanbúin að bregðast við, taka og læra af gagnrýni.“

Ég óttast að það sé uppi á teningnum núna.