fsp. 1.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vísa til þess að ég hafi starfað innan akademíunnar, sem er nú líklega ofsagt. Ég hef eingöngu verið stundakennari á þeim vettvangi. En það sem ég var að fara yfir hér, þó að hv. þingmaður kjósi að bregðast við því með þeim hætti sem hann gerir, er það ferli sem er viðhaft þegar ráðið er í stöður á vegum norrænu ráðherranefndarinnar eins og t.d. þessa tilteknu stöðu.
Þá má spyrja sig, þegar hv. þingmaður talar um inngrip, hvort það sé inngrip ef ráðherra sem starfar í viðkomandi ráðherraráði — sem ég hef vissulega gert sjálf sem samstarfsráðherra Norðurlanda, sem menntamálaráðherra, og haft aðkomu að slíkum ákvörðunum — hvort það sé inngrip ef ráðherra eða ráðuneyti hans hefur slíka skoðun þegar gert er ráð fyrir því í ferlinu. Það er einfaldlega það sem ég er að benda á. Ég er ekki að taka neina afstöðu til þess hver hefði átt að vera ráðinn ritstjóri þessa tímarits enda heyrir það ekki undir mitt verksvið. Ég er einfaldlega að benda hv. þingmanni á að ferlið gerir ráð fyrir því að aðildarríki norrænu ráðherranefndarinnar komi sér saman um slíka skipan og slíkt ferli þekki ég vel frá mínum fyrri embættisskyldum sem samstarfsráðherra.