fsp. 2.
Forseti. Ég ætla að halda áfram með þessa fyrirspurn sem hv. þm. Logi Einarsson byrjaði með. Ef einhvern vantaði vissu um að Sjálfstæðisflokkurinn stundi hér á landi pólitískar ofsóknir þá þarf kannski ekki að leita lengra en í frétt Ríkisútvarpsins í gær. Þar var látbragðsleiknum hætt um stund og viðurkennt grímulaust að fræðimenn sem haga sér ekki skuli búast við því að vera refsað fyrir það hvenær sem tækifæri gefst til.
Fréttir gærdagsins eru einungis angi af mun stærra vandamáli. Gegnumsýrð hagsmunagæsla til að tryggja hina einu réttu skoðun hefur leikið samfélag fræðimanna svo grátt að fjölmargir þeirra þora ekki að láta í sér heyra.
Ég heyrði ekki betur en að hæstv. forsætisráðherra réttlætti þessi vinnubrögð hæstv. fjármálaráðherra. Ég heyri að hæstv. forsætisráðherra ætlar að taka í sama streng og fjármálaráðherra og skýla sér meira að segja á bak við femínisma, rétt eins og var gert á sínum tíma í Landsréttarmálinu til að afsaka þann gjörning, til að afsaka pólitísk afskipti af stöðuveitingum. En ég hef ekki enn þá, sem betur fer, heyrt að hún leggi blessun sína yfir þann atvinnuróg sem borinn var á Þorvald Gylfason, logið var upp á hann formennsku í stjórnmálaflokki með einhverri eftiráskýringu um uppflettingu á alfræðiritinu (Gripið fram í: Alvarlegar sakir.) Wikipedia. (Gripið fram í: Alvarlegar sakir. ) Burt séð frá því hvernig fjármála- og efnahagsráðherra reynir að fela gjörðir sínar með orðhengilshætti og útúrsnúningum um hvað séu afskipti og hvað séu ekki afskipti, finna allir lyktina, forseti.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Finnst henni afskipti af ráðningu fræðimanna, byggð á stjórnmálaskoðunum viðkomandi, í lagi? Þetta er ein spurning. Þetta er já eða nei spurning. Finnst hæstv. forsætisráðherra afskipti af ráðningu fræðimanna, byggð á stjórnmálaskoðunum viðkomandi, í lagi?