150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 2.

[13:51]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hér var rætt töluvert um akademískt frelsi, hugtak sem ég þekki ágætlega þar sem ég beitti mér fyrir því sem menntamálaráðherra að slíkt hugtak yrði skilgreint í lögum um háskóla, enda eitt mikilvægasta hugtak sem háskólamenn fjalla um á öllum tímum. Hv. þingmenn geta sagt hvað sem þeir vilja um þá sem hér stendur. En að hún hafi á einhverjum tímapunkti ógnað fræðimönnum eða fræðilegu frelsi þeirra er rangt. Það er svo að ég hef aldrei nokkurn tímann óttast gagnrýna orðræðu. Af því að hv. þingmenn vitna hér í skýrslu starfshóps sem ég skipaði um eflingu trausts þá skipaði ég þar þekktan gagnrýnanda og prófessor, að mig minnir, sem formann, Jón Ólafsson, sem hefur ekki hikað við að gagnrýna á síðari tímum þá sem hér stendur. Ég nefni það bara sem eitt dæmi af fjölmörgum um nauðsyn þess að þeir sem starfa innan akademíunnar séu gagnrýnir.

Það sem ég var hins vegar að útskýra hér áðan í svari mínu við fyrirspurn hv. þm. Loga Einarssonar er það ferli sem norræna ráðherranefndin starfar samkvæmt. Því kann ég ekki við það þegar hv. þingmenn líta algjörlega fram hjá þeim staðreyndum og tala um afskipti eða inngrip hæstv. fjármálaráðherra þegar ferlið sjálft byggist á því að aðildarríki norrænu ráðherranefndarinnar komi sér saman um það hver sé ráðinn. Slíkar skoðanir hef ég haft á fyrri tíð sem menntamálaráðherra og sem samstarfsráðherra þegar til stóðu slíkar ráðningar því það er ætlast til þess að aðildarríkin komi sér saman um kandídat. Mér finnst það jákvætt að Ísland hafi lagt á það áherslu að tilnefna konu. Er ég að skila mér á bak við femínisma í því? Nei, mér finnst bara frekar jákvætt að við höldum því flaggi á lofti (Forseti hringir.) í alþjóðlegu samstarfi. (Gripið fram í.)

(Forseti (SJS): Er hægt að hafa þögn í salnum? Sérstaklega þeir sem eru búnir að fá spurningum sínum svarað.)