fsp. 2.
Forseti. Eins og svo oft áður tókst hæstv. forsætisráðherra að eyða tveimur mínútum af tíma okkar allra í að svara ekki spurningu minni og ég mun því endurtaka hana. Ég vil taka fram að ég sakaði hæstv. forsætisráðherra ekki um neitt heldur spurði ég hreinlega hvort hún væri sammála hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í sinni niðurstöðu.
Akademískt frelsi felst m.a. í því að fræðimenn þurfi ekki að sæta hefndaraðgerða fyrir skoðanir sínar eða fræðistörf. Það er útúrsnúningur að halda því fram að ég hafi sakað hæstv. forsætisráðherra um slíkt. Ég var að saka hæstv. fjármálaráðherra um það.
Varðstaða um akademískt frelsi á Íslandi býður ekki upp á að forsætisráðherra sitji hjá í svörum sínum þannig að ég spyr aftur og segi fyrir fram að ég mun persónulega túlka útúrsnúning og aðrar leiðir til að afvegaleiða umræðuna á þann veg að hæstv. forsætisráðherra sé sammála skoðanakúgun fjármála- og efnahagsráðherra, bara svo það sé ljóst.
Ég spyr já eða nei spurningar: (Forseti hringir.) Er hæstv. forsætisráðherra sammála því að ráðherra og ráðuneyti sé að hlutast til um ráðningar fræðimanna, byggt á stjórnmálaskoðunum viðkomandi? (Forseti hringir.) Er hún sammála?