150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 3.

[13:59]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og segja það að sú aukning sem varð í atvinnuleysi hér þegar Covid-faraldurinn gekk yfir gerði það að verkum að til að mynda í marsmánuði bárust 53.000 umsóknir um atvinnuleysisbætur eða hlutabætur. Til samanburðar voru í febrúarmánuði 10.000 einstaklingar skráðir án atvinnu. Um ein mánaðamót jókst fjöldinn því úr 10.000 í 50.000. Það eru 40.000 Íslendingar í viðbót sem þurftu að sækja um atvinnuleysisbætur. Það gerðist gríðarlega hratt. Það var ekki eins og menn gætu gert áætlun um það sex mánuðum fyrr að bregðast við og gætu allt í einu afgreitt 40.000 umsóknir á einum mánuði.

Vinnumálastofnun hefur í því sambandi reynt að flýta ferlinu eins og kostur er en í einhvern tíma þarna á eftir tók það sex til átta vikur að afgreiða allar umsóknir, þrátt fyrir að bætt hafi verið við 30–40 stöðugildum. En ég hef vitneskju um að það gangi vel að vinna þetta niður, það sé að minnka og eftir séu sérstaklega umsóknir þar sem vantað hafi einhver fylgigögn eða annað og þeim hafi verið ýtt til hliðar meðan mesti hamagangurinn var. Það varð fimmföldun í umsóknum hjá stofnuninni á sama tíma og allir starfsmenn voru í samkomubanni og voru heima. Það var ekki hægt að halda uppi eðlilegri starfsemi innan stofnunarinnar vegna þess en þó tókst það að mestu leyti. Þess vegna hefur því miður farið svo að við höfum ekki náð að greiða öllum fyrir þann tíma sem við vildum miða við. Það er bara ein af þeim áskorunum sem við erum að glíma við þegar hlutirnir gerast svona hratt. Ráðherranum finnst þetta leiðinlegt, skelfilegt. Forstjórinn hefur talað með sama hætti. Við erum búin að bæta fjárveitingum við til stofnunarinnar og búið er að bæta við starfsmönnum há stofnuninni. Ég hef vitneskju um að þetta sé að hafast, staflinn af umsóknum sem eftir eigi að afgreiða sé að minnka. Þetta er eitt af því sem við höfum þurft að glíma við, horfast í augu við og ráðherranum finnst það jafn skelfilegt og þingmanninum sem spurði spurningarinnar.