fsp. 3.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin en þetta eru bara afsakanir. Borgið þetta, reiknið það eftir á eins og við höfum verið að gera, gerið það núna. Hvar eru t.d. 25 milljónirnar sem áttu að fara til Fjölskylduhjálparinnar? Af hverju borgið þið það ekki út? Eruð þið að safna peningum? Þið segist vera búin að setja peningana inn. Ef það er búið að setja peningana inn í Vinnumálastofnun, borgið þá út. Fólk þarf á þessum peningum að halda, það þarf að borga leiguna, það þarf að eiga fyrir mat og það getur ekki beðið lengur. Við vitum það sjálf að þeir sem eru með 300.000 kr. útborgaðar hafa ekki safnað neinu, þeir eiga engan varasjóð. Þeir sem fá 700.000–900.000 kr. í laun eiga varasjóð, þeir geta beðið. En þið snúið þessu öllu á hvolf, þeir eiga ekki að bíða heldur hinir sem ekki geta beðið, þeir eiga að bíða.