150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 4.

[14:07]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra þetta svar og gleðst yfir því að nú loks hilli undir einhver úrslit í þessu máli. Mér þykir leitt að ráðherra skyldi ekki tilgreina þessar meintu rangfærslur sem áttu að vera í orðum mínum hér áðan. Það hefði verið fróðlegt að heyra þær. Mig langar bara að benda á eitt, herra forseti: Síðasta fyrirspurnin um þetta mál, sem lögð var fram fyrir þremur og hálfum mánuði, tekur tillit til minnisblaðs yfirlögfræðings Alþingis, sem nota bene er dagsett 10. október 2019. Hæstv. ráðherra hefur væntanlega verið það ljóst í sex til átta mánuði að hann hefur farið fram af rangindum í þessu máli. Þess vegna gleður það mig mjög að hann skuli víkja af þeim vegi og fara inn á þann þrönga stíg sem okkur er ætlað að ganga.