150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 5.

[14:11]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Við fylgjumst auðvitað með mótmælunum vestan hafs og ég deili því sem hv. þingmaður fer hér yfir varðandi það að við þurfum alltaf að vera á varðbergi. Við þurfum að horfa til okkar sjálfra og gæta að því að setjast ekki í þann stól að gagnrýna önnur lönd en vera ekki tilbúin til að horfa til okkar sjálfra. Ég held að það sé margt sem við getum gert betur. Ég held að það sé margt sem við erum að gera vel. Það er margt sem við getum gert betur sem samfélag.

Ríkisstjórnin er til að mynda núna, sem tengist Covid-19, að auka í fjármagn sem á að fara í aðgerðir til að bregðast við ofbeldi almennt. Ég og dómsmálaráðherra skipuðum stýrihóp til að stýra þeim aðgerðum, það eru milli 200 og 300 milljónir sem eru ætlaðar í það. Sá hópur er undir forystu ríkislögreglustjóra, Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, og Eyglóar Harðardóttur, fyrrverandi félagsmálaráðherra. Þær hafa verið að undirbúa aðgerðir og verið í samskiptum við frjáls félagasamtök og fleiri með hvaða aðgerðir væri skynsamlegt að ráðast í.

En ég deili þeirri skoðun með hv. þingmanni að við þurfum alltaf að vera á varðbergi og við þurfum alltaf að vera tilbúin til að líta í eigin barm í þessum málum frekar en að setja okkur á þann hest að gagnrýna aðra vegna þess að ég held að þetta eigi sér stað í íslensku samfélagi líkt og í öðrum samfélögum. Þetta er ekki eitthvað sem við sigrum í eitt skipti fyrir öll. Þetta er eitthvað sem við þurfum alltaf að vera opin fyrir á hverjum tíma.