fsp. 5.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félagsmálaráðherra svörin. Það er þekkt að þegar hætta steðjar að hópum eins og margt fólk upplifir nú í heimsfaraldrinum og í þeim miklu efnahagsþrengingum sem við okkur horfa þá þrengja hópar sig. Ísland er ekki ónæmt fyrir þessu og það er stjórnvalda að vera vakandi fyrir þessum veruleika.
Í vikunni komst Mannréttindadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að mál manns gegn íslenska ríkinu væri ekki tækt til efnismeðferðar og vísaði því frá sem þýðir að dómur Hæstaréttar yfir manninum stendur óraskaður en hann var dæmdur fyrir gróf, meiðandi ummæli, hatursorðræðu samkvæmt hegningarlögum. Dómurinn sýnir auðvitað að Ísland er einmitt ekki ónæmt fyrir þessu, ekki ónæmt fyrir fordómum og við þurfum öll að líta inn á við og við eigum að gera betur eins og ráðherrann sjálfur sagði.
En í því samhengi þá hef ég áhyggjur eftir að hafa hlustað á umræður hér í þingsal. Ég hef áhyggjur af ríkisstjórninni, t.d. hvað varðar afstöðu hennar til fólks á flótta og þá útlendingapólitík sem birtist okkur þar. (Forseti hringir.) Því spyr ég hæstv. ráðherra í kjölfar þessarar umræðu okkar hér og orða hans um að við eigum að horfa til okkar sjálfra líka: (Forseti hringir.) Er einhugur um útlendingafrumvarp í ríkisstjórninni og styður hann sjálfur það mál?