150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

fsp. 5.

[14:15]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa seinni fyrirspurn. Þær áherslur sem ég hef haft gagnvart útlendingamálum eru að horft sé sérstaklega til stöðu barna í því samhengi. Við höfum átt góð samtöl um það, ég og dómsmálaráðherra. Þetta mál er í vinnslu þingsins. Ég held að það verði að fá að ljúka sinni umfjöllun og þegar málið kemur síðan inn í þingsal þá greiðir hver atkvæði eins og hann vill í því. En ég bendi á að þetta er ríkisstjórnarmál og ríkisstjórnin hefur lagt það fram og þar af leiðandi er ríkisstjórnin í grófum dráttum sammála um það. En hins vegar hef ég lagt áherslu á það, bæði í máli mínu við dómsmálaráðherra og opinberlega, að mikilvægt sé að styrkja sérstaklega stöðu barna á flótta, fylgdarlausra barna og annarra. Við höfum verið með margvísleg verkefni í gangi í ráðuneytinu til þess að gera betur í þeim efnum. Ég tel að við getum gert betur í þeim efnum en við erum að gera í dag.