ársreikningar.
Herra forseti. Hér er í sjálfu sér ekki um mjög stórt mál að ræða en ég hafði ekki tök á að ræða það í öðrum umræðum. Ég ætla að gera það hér, bara örstutt.
Ég vek athygli á því að nefndin virðist öll sammála um hvernig málinu skuli ljúka og er þá væntanlega sammála um þær breytingar sem verið er að gera. Fram kemur að ekki hafi komið fram miklar athugasemdir við frumvarpið sem slíkt. Hins vegar hafi við umfjöllun í nefndinni komið fram vangaveltur og fyrirspurnir um hluti sem tengjast rekstri fyrirtækja, sér í lagi lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem vakin var athygli á fyrir nefndinni.
Frumvarpið sem slíkt fjallar um breytingar á skilum ársreikninga. Þær athugasemdir sem komu fram, m.a. í nefndinni, sneru m.a. að því að ákveðnar reglur um ársreikninga gætu verið íþyngjandi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Því þyrfti að huga að stærðarmörkum fyrirtækja og þeim reglum eða því umhverfi sem þau búa við. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að horfa til þess að þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki, einyrkjar jafnvel, sem við eigum á Íslandi, eru undirstaðan í atvinnulífinu eins og við þekkjum það. Þessi fyrirtæki halda hjólunum gangandi. Stærstur hluti fyrirtækja telst til hóps lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þótt vissulega séu aðrar atvinnugreinar oft nefndar sem undirstöðuatvinnugreinar, eins og sjávarútvegur og ýmislegt annað, þá megum við ekki gleyma þessum stóra massa af fyrirtækjum í íslensku samfélagi sem eru litlu og meðalstóru fyrirtækin. Það kemur fram í nefndaráliti að nefndin hafi skilning á þeim sjónarmiðum sem komu m.a. fram í umsögn Samtaka iðnaðarins. Bendir nefndin m.a. á að það sé nauðsynlegt að endurskoða IX. kafla laga um ársreikninga að því er varðar fjárhæðarmörk fyrir þau fyrirtæki.
Þegar við fáum til umfjöllunar mál sem virðast lítil eins og þetta förum við gjarnan að horfa á stóru myndina, á umhverfið í heild. Þá skiptir máli að við séum meðvituð um hvort þær ákvarðanir sem við tökum, þó að þær séu kannski litlar, hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á umhverfi fyrirtækjanna. Auðvitað hefði maður kannski átt að vera búinn að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis. En ég held það sé mjög mikilvægt fyrir okkur hér á Alþingi að hvetja til þess að fjármála- og efnahagsráðherra yrði falið sérstaklega að fara yfir rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja með það að markmiði að gera þeim jafn auðvelt og stærri fyrirtækjum að sinna þeim skyldum sem lagðar eru á þau með lögum, þar á meðal um ársreikninga, og ekki síður að einstaklingar í rekstri eða þeir sem eru með lítið fyrirtæki sitji við sama borð og stærri fyrirtækin. Á það hefur verið bent, m.a. af einstaklingi sem er einn með sitt fyrirtæki, að hann má ekki reikna sér ákveðna hluti sem stærri fyrirtæki geta gert eins og fatapeninga og slíkt. Auðvitað á ekki að skipta máli hvort starfsmenn eru einn eða fleiri þegar kemur að því að reyna að styrkja rekstur fyrirtækjanna.
Þegar við veltum því fyrir okkur hvort við getum með einhverjum ákveðnum hætti stutt enn frekar við þau fyrirtæki þá veltir maður að sjálfsögðu fyrir sér rekstrarumhverfinu. Það tengist auðvitað því hvað kemur fram í ársreikningum fyrirtækjanna. Skila þau hagnaði? Skila þau arði til eigenda sinna, hvort sem þeir eru einn, tveir eða fleiri? Eiga þau erfitt með að ná endum saman og þá af hverju? Er það vegna umhverfis sem við hér á Alþingi höfum búið til? Er það skattumhverfið? Eigum við að létta sköttum af fyrirtækjum frá því sem nú er? Ég held það. Ég held að við eigum að horfa til þess að lækka skatta á fyrirtæki. Þá er eðlilega spurt hvort heimilin eigi að sitja við sama borð og þá má velta fyrir sér hver útgjöld heimilisins séu, hvar þau liggi. Ég held t.d. að það hefði átt að gerast núna, á tímum þessa faraldurs sem við glímum við, að taka t.d. af eða í það minnsta minnka mjög mikið virðisaukaskatt á matvæli því að matarinnkaup eru mjög stór þáttur í rekstri heimilanna. Þannig hefðum við getað komið til móts við heimilin og jafnvel hvatt til þess að meira sé keypt af slíku sem hefði þá á endanum kannski getað stutt líka við innlenda framleiðslu svo maður reyni nú að horfa á heildarmyndina.
Það frumvarp sem hér um ræðir er kannski ekki stórt í sniðum en skiptir máli og þar af leiðandi er því fagnað að það skuli klárast með þeim hætti sem þarna er. Við höfum oft og tíðum fjallað um umhverfið sem fyrirtæki búa við og tengist það að sjálfsögðu veru okkar á Evrópska efnahagssvæðinu. Ljóst má vera að því fylgja alls konar skyldur og kröfur sem til okkar eru gerðar og m.a. kemur fram í frumvarpinu að hér er verið að vísa til ákveðinna gerða Evrópusambandsins sem við höfum innleitt. Íslenskt atvinnulíf hefur að mestu leyti — það er nú ekki hægt að alhæfa um það — sérstaklega þeir sem eru í viðskipta- og samkeppnisumhverfi, lagt áherslu á að Evrópureglurnar séu innleiddar með svipuðum hætti á Íslandi til að þeir geti verið í samkeppni við erlendar vörur og þjónustu og er því mikilvægt að sú endurspeglun eigi sér stað þar sem við teljum að slíkt sé eðlilegt. Á sama tíma hafa aðrar atvinnugreinar og önnur fyrirtæki varað við eða í rauninni reynt að standa í vegi fyrir þeirri einsleitni sem fylgir því að taka upp þær Evrópureglur gagnvart Evrópusambandinu og er ég þá aðallega að horfa á t.d. matvælageirann, íslenskan landbúnað og þess háttar. Ég tel að við höfum ekki gert nóg til að vernda þá sérstöðu sem þar er.
Mörg af þeim litlu fyrirtækjum sem ég er að ræða hér eru tengd landbúnaði. Fæst fyrirtæki í landbúnaði eru mjög stór, einstaklingar reka þessi fyrirtæki, þetta eru fjölskyldur, fjölskyldubú o.s.frv. Mér finnst að við eigum að skoða hvernig við getum einfaldað og hjálpað til við að gera rekstrarumhverfið auðveldara og betra en það er í dag. Ég ætla að leyfa mér í því sambandi að nefna að þeim hefur fækkað gríðarlega á Íslandi sem eru með loðdýrabúskap. Þetta eru einstaklingar, þetta eru lítil fyrirtæki sem velta ekki mjög miklu. Þó að útflutningsverðmæti skinnanna hafi einhvern tíma náð held ég yfir milljarði króna þá skiptir þau að sjálfsögðu máli að umhverfið sem ríkið býr þeim sé eðlilegt.
Nú er svo komið að eftir verðfall vegna markaðsaðstæðna bætist við áframhaldandi lágt verð vegna veirunnar sem herjar á heimsbyggðina. Íslensk stjórnvöld hafa ekki séð ástæðu til að aðstoða þessi fyrirtæki. Í það minnsta hefur það ekki komið fyrir mín augu, kannski hefur það farið fram hjá mér. Farið hefur verið fram á, veit ég, að ákveðinn stuðningur verði veittur, t.d. vegna fóðurkostnaðar. Það sem menn verða að hafa í huga líka er að þessi atvinnugrein, þessi litlu fyrirtæki, þessi fjölskyldufyrirtæki, sem þurfa eins og aðrir að skila ársreikningum og sýna fram á að rekstur þeirra sé eðlilegur og í lagi, eru um leið að leysa stórt umhverfismál fyrir Íslendinga. Það snýr að því að þeim hráefnum sem notuð eru þarna í fóður hefði annars þurft að eyða með öðrum hætti, urða eða brenna eða flytja út. Reyndar er þekkt að slík hráefni hafa verið flutt út, til Danmerkur að mig minnir, með öllum þeim kostnaði og umhverfissóðaskap sem því fylgir. Ég held að þegar við horfum á þessi fyrirtæki öllsömul, þau sem þurfa að skila ársreikningum og lítil og meðalstór fyrirtæki, verðum við að reyna skoða heildarmyndina því það er eitthvað sem skiptir okkur öll máli.
Nefndin hefur komið sér saman um að gera ákveðnar breytingar á frumvarpinu og er það vel. Þetta eru smávægilegar breytingar en engu að síður er verið að skýra og gera málið enn betra. Mér sýnist að allir nefndarmenn hafi skrifað undir nefndarálitið og þar með afgreiðslu málsins sem er kostur því að það sýnir þá að Alþingi hefur staðið saman, a.m.k. í þessu máli, við að finna lausnir og leiðir til að afgreiða það með eðlilegum og sanngjörnum hætti, þannig að um það geti náðst þokkalega góð sátt. Það er það sem maður vildi að sjálfsögðu sjá almennt með þingmál sem við afgreiðum þó að það sé ekki stærra mál en þetta. Það er mjög mikilvægt að við vöndum til verka. Eftir því sem er hægt að hafa meiri sátt um þingmálin sem eru afgreidd hér, þeim mun meiri líkur eru á að þau nái fram að ganga, þeim mun meiri líkur eru á að þau skili sér á endanum með þeim hætti að ekki sé sífellt verið að hræra í þeim þó að hér verði stjórnarskipti. Þó að þetta mál sé lítið þá vitum við alveg að það er hægt að hafa ýmsar skoðanir á litlum málum sem og stórum. Það er eitthvað sem við hljótum að vilja stefna að, að umfjöllun og vinnsla mála verði með svipuðum hætti og var með þetta litla mál í efnahags- og viðskiptanefnd sem virðist hafa haldið vel á því og gerir það líklega almennt með þau mál sem þar eru.
Ég vildi koma því á framfæri, herra forseti, um leið og ég fagna því að um málið ríki einhugur, þótt lítið sé í rauninni, að við gleymum ekki að það er mikilvægt að sátt ríki um mál hér og gleymum ekki heldur að horfa á stóru myndina hvað varðar litlu og meðalstóru fyrirtækin, sem er kannski verið að slá hér ákveðna varnagla við af hálfu Samtaka iðnaðarins. Það er auðveldara fyrir stóru fyrirtækin sem hafa jafnvel úr miklu meiri fjármunum að spila að vera með alls konar ráðgjafa og dýra sérfræðinga á sínum snærum en þau sem minni eru. Því þarf að skoða sérstaklega hvort hægt væri að létta þá umgjörð sem snýr m.a. að ársreikningaskilum og öðru slíku þegar kemur að þeim fyrirtækjum sem hér um ræðir.
Nú vonast ég til þess á lokametrunum að hér muni koma fram frekari vangaveltur um þetta mál og mál því tengd, þ.e. að við förum að velta fyrir okkur umhverfinu sem er svo mikilvægt að sé heilbrigt og gott hjá okkur, um leið og við viljum ekki að það sé of íþyngjandi. Það er eðlilegt að fyrirtæki þurfi að standa skil á upplýsingum um rekstur sinn og eðlilegt að þau greiði skatta sína og sinni skyldum. Á sama tíma þurfum við að velta fyrir okkur hvar eðlilegt sé að þau mörk liggi þegar kemur að sköttum og öðru slíku. Nú hefði verið t.d. vel við hæfi, herra forseti, að létta mun meira en gert hefur verið á greiðslum tryggingagjalds til lengri tíma fyrir þau fyrirtæki því að þau verða misvel í stakk búin til þess að koma sér áfram eftir þann skell sem þessi veira er sem herjar á okkur. Þó að við sjáum nú einhverja tíru við enda ganganna þá verður baráttan lengri. Það mun taka lengri tíma að komast til lands eftir það allt saman og það er það sem við þurfum að vanda okkur við og stefna að, ekki bara þegar kemur að fyrirtækjum heldur líka að sjálfsögðu heimilunum. Heimilin fá tekjur sínar af launum af því að heimilismenn stunda atvinnu og geta þannig brauðfætt heimilið. Þá skiptir máli að allir séu býsna öruggir, eins öruggir og hægt er, með störf sín. Þá skiptir ekki máli hvort við tölum um einhvern sem vinnur hjá stórfyrirtæki eða einstakling með lítið fyrirtæki sem þarf að eyða fjármunum í dýran sérfræðikostnað sem kannski mætti minnka eða komast hjá með einhverjum hætti og það er það sem ég tel að við þurfum að skoða, herra forseti.
Þetta er eitt af þeim málum sem við erum að afgreiða undir lok þessa þings sem hefur verið svolítið sérstakt af ástæðum sem öllum eru kunnar og ég vona að á lokametrunum takist okkur að einblína á þau verkefni og mál sem nauðsynlegt er að klára og að við festumst ekki í málum sem geta beðið eða skipta minna máli. Þó að metnaður einstakra ráðherra eða þingnefnda sé kannski mikill þá þarf hann (Forseti hringir.) að vera raunhæfur.