150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

ársreikningar.

447. mál
[15:22]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég held að kjarninn sé einmitt að tæknin gefur og tæknin tekur. Hér hefur tæknin kannski gefið okkur tækifæri til að fylgjast betur með hlutunum og gera þá betur. Hún tekur líka af fólki möguleikann á því að svindla ef við útfærum hlutina rétt. Það er bara jákvætt, held ég.

Það er rétt að eftirhrunsregluverk Evrópusambandsins, kannski aðallega varðandi t.d. skilameðferð bankastofnana, lánastofnana og annað sem við erum að fara að fjalla um síðar í dag og ýmislegt í þá veruna, hefur bætt stöðu reikningshalds og endurskoðunar og góðra viðskiptahátta sem um munar úti um alla Evrópu. Reyndar gerðust sambærilegir hlutir mun víðar eftir hrunið 2008. Þetta eru allt jákvæðir hlutir og ég hef verið mjög ánægður með að sjá mörg mál á borð við BRRD og MiFID II og annað (Forseti hringir.) fara í gegnum þingið á undanförnum árum. Þetta er ekki búið. Við eigum langt í land meira að segja en þetta er allt að koma.