150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

ársreikningar.

447. mál
[15:23]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu og sér í lagi það sem hann sagði um framtíðina og hvað getur gerst í allri þessari sjálfvirkni og að við þurfum að hafa minni áhyggjur í rauninni af þessum málum þegar þau sitja fyrir framan okkur, hvenær við eigum að skila og slíkt.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það sé ekki hreinlega inni í myndinni að breyta þessu þannig að fyrirtæki, og mögulega má skipta þeim í einhverja hópa, skili þessum upplýsingum miklu sjaldnar en í dag, t.d. á nokkurra ára fresti. Yfirvöld gætu þá haft meira leyfi eða rétt til að taka stikkprufur og eitthvað slíkt. Fyrirtæki gæti skilað ársreikningi á þriggja ára fresti eða eitthvað, eða hvað sem manni finnst um það. Ef skilunum fækkar með meiri sjálfvirkni auðveldar það fyrirtækjum að sjálfsögðu að standa skil á þessu.