150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

ársreikningar.

447. mál
[15:28]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Eðli fyrirtækjanna mun auðvitað hafa töluverð áhrif. Það er augljóst að lítið fyrirtæki með litlar eignir og litla starfsemi eða tiltölulega einfalda er í allt annarri stöðu til að geta skilað hlutum sjálfvirkt og með einföldum hætti en t.d. risavaxið alþjóðlegt fyrirtæki sem er með dótturfyrirtæki í mörgum löndum og gerir upp mjög flókna samstæðureikninga. Að lokum ætti að vera hægt að sjálfvirknivæða það allt saman.

Ég nefndi áðan Stafford Beer, sem forseti Chile fékk á sínum tíma, 1970–1973, til þess reyna að sjálfvirknivæða upplýsingaflæði í hagkerfinu þar. Eitt af því sem hann var alltaf að glíma við var að gæði upplýsinganna voru alltaf sá punktur sem allt saman féll á. Ef staðlarnir eru nógu góðir ætti það í sjálfu sér ekki að skipta neinu máli þó að sum fyrirtæki séu með aðeins veikara utanumhald (Forseti hringir.) vegna þess að upplýsingarnar verða að jafnaði nógu góðar til að lýsa hagkerfinu í heild.