ársreikningar.
Herra forseti. Spurningin er í rauninni: Hver endurskoðar endurskoðendurna? Það er gild spurning. Við ræddum þetta áður, það var þingmál held ég fyrir ári síðan sem tók svolítið á þessu og var að bæta þetta. Ég verð að viðurkenna að ég man ekki í svipinn öll efnisatriði þess máls en það er ljóst að eftirlit með störfum endurskoðenda skiptir máli og þeir hafa sjálfir verið mjög duglegir að fara fram á að það sé gert með eðlilegum hætti. Eitt af því sem gerist eftir því sem hlutirnir verða rafvæddari og sjálfvirkari er að störf endurskoðenda verða auðveldari, bæði þeirra sem stunda hina eiginlegu endurskoðun og þeirra sem fylgjast með þeim og hafa eftirlit með störfum þeirra. Þarf að bæta eftirlitið? Ég þekki það satt að segja ekki nógu vel. En ég hugsa að ef við gætum alla vega gert það auðveldara að sinna hlutverkinu vel yrði það til bóta fyrir alla.