ársreikningar.
Herra forseti. Ég rakti það áðan að eftirhrunsregluverk Evrópusambandsins um fjármálamarkaði gerði einmitt mjög margt til þess að læra af þessum mistökum og laga það. Ég hef talað fyrir því frá því að ég settist á þing að við ættum að hraða því ferli sem allra mest og klára innleiðingu þess regluverks. Það myndi bera okkur ansi langt í þessu. Síðan er náttúrlega hitt að við erum með afskaplega vanfjármagnaðar eftirlitsstofnanir á Íslandi og góð fjármögnun þeirra mun gera töluvert til að bæta trúverðugleika stofnanakerfis okkar. En að einhverju leyti verðum við að horfa á kerfið sem heild. Það er ekki bara þannig að endurskoðendur bankanna hafi verið að vinna vinnuna sína illa fyrir hrun þó svo að mögulegt sé að einhverjir hafi gert það og jafnvel einhverjir með mjög vafasömum hætti. Staðreyndin er að við vitum um kerfislæga galla í því hvernig bankakerfið sjálft er byggt upp, (Forseti hringir.) hvernig skattkerfið og annað er byggt upp, og í þeim grundvallarhugmyndum sem liggja öllu því apparati til grundvallar (Forseti hringir.) sem eru beinlínis skaðlegir og við vitum að það mun valda hruni, kannski ekki reglulega en mjög oft.