ársreikningar.
Virðulegur forseti. Við erum aftur komin í fundarstjórn forseta þó að hér sé verið að ræða mál nr. 3 á dagskránni um ársreikninga þar sem liggur fyrir nefndarálit sem allir í nefndinni skrifa undir. Samt sem áður er fjöldi fólks á mælendaskrá og hefur núna mjög mikla þörf fyrir að ræða þetta stóra og mikla mál. Ég hygg að eiginlega öll mál á dagskrá séu mikilvæg með einhverjum hætti. Hér er til að mynda eitt mál sem ég hlakka mjög mikið til að verði að lögum og það er málefni Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs, og síðast en ekki síst 15. mál á dagskrá sem ég vona svo sannarlega að við getum afgreitt mjög fljótlega. En það er einn flokkur á þingi sem hefur boðað málþóf um nákvæmlega það mál, Miðflokkurinn, sem vill alls ekki sjá borgarlínu. Ég hélt að hér væri almennur stuðningur við það mikilvæga verkefni og það er mikilvægt að við náum að stofna þetta hlutafélag og það komist í gagnið svo að sveitarfélögin geti farið að vinna með okkur og samstaða ríki milli þings og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um raunverulegar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu.
Ég vil hvetja hv. þingmenn sem hafa sett sig á mælendaskrá til að styðja málþóf Miðflokksmanna um borgarlínu að endurskoða hug sinn.