ársreikningar.
Virðulegur forseti. Við ræðum líklega í þriðja sinn í dag um fundarstjórn forseta. Þetta er bragur sem er sérkennilegur en ekki óþekktur á degi þar sem dagskráin er þétt skipuð og við erum enn að ræða hið mikilvæga mál um ársreikninga. Lestin mjakast hægt áfram í dag. Þegar málið um ársreikninga var rætt við 2. umr. tók umræðan í heild innan við tíu mínútur, held ég. Ég vil leyfa mér að taka undir með félaga mínum, hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni, að við ættum að reyna að færa okkur frá þessari sviðsmynd þar sem átök eru einkennandi. Við þurfum á því að halda að ljúka þinginu í vor með góðum brag, það bíða mikilvæg mál. Við þurfum að leggja á það áherslu (Forseti hringir.) að koma þeim málum sem mest eru knýjandi almenningi til heilla í gegnum þingið fyrir þinglok.