ársreikningar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni andsvarið. Þetta er mjög áhugaverð vangavelta sem hv. þingmaður setur fram um að reyna að ná utan um mörkin, hvenær þetta fer að verða íþyngjandi þannig að það bíti, ef svo má segja. Það er kannski hluti af því sem ég kom inn á varðandi athugasemdir Samtaka iðnaðarins, að hið minnsta væri ástæða til að færa þessi mörk án mikilla rannsókna varðandi hina raunverulegu skilgreiningu á litlum fyrirtækjum sem þó liggur fyrir í lögum.
Ég tel það fullvíst, ég leyfi mér að fullyrða, að allir málarar landsins eru betri í að mála en að færa bókhald. Svo mætti telja um meira og minna allar starfsstéttir landsins. Ég held að fólk eigi almennt í lífinu að reyna að gera sem mest af því sem það er gott í og minna af því sem það er lélegt í.
Í þessu samhengi er þjónustan tiltölulega dýr, sérstaklega þegar fyrirtæki fara yfir mörkin sem þarna eru. Í umsögnum var vísað í að fyrirtækin færu yfir í það að vera með kvöð um endurskoðaðan ársreikning. Í rekstri er það þannig að litlu hlutirnir safnast upp. Það er stundaður einhver rekstur sem er með 18% EBITDA, sem kallað er, hagnaður af rekstrinum sjálfum. Þá á eftir að taka tillit til fjármagnsskipunar, afskrifta og fleira slíks. Rekstraraðilar eru því ekki að vinna beint á 100% af öllum tekjum sínum. Það sem skilur á milli þess hvort það er hagnaður eða tap af rekstrinum í heild ræðst af því hvernig mönnum tekst að hantera heilan helling af kostnaðarliðum sem liggja á bilinu 0,5–2%, sem er eitt og sér kannski ekki mikið en getur ráðið því (Forseti hringir.) hvort fyrirtæki eru í góðum rekstri eða ekki í heildina. Ég held að við eigum að leita að öllum tiltækum leiðum (Forseti hringir.) til þess að fyrirtækin þurfi ekki að bera kostnað (Forseti hringir.) sem skilar ekki neinu í bættu umhverfi, annaðhvort upplýsingalega eða í skattskilum eða þar fram eftir götunum.
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á tímamörk.)