ársreikningar.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja, mér til ákveðinnar gleði, að ég tek undir með hv. þingmanni. En ég velti líka fyrir mér í þessu sambandi: Hver er ábyrgð ríkisins þegar það ákveður að setja kvaðir á fyrirtæki? Hver er ábyrgð ríkisins á að gera það alla vega auðvelt að sinna þessum skyldum? Ég veit að fólk sem hefur engan áhuga á þessu, sérstaklega fólk sem er snemma á lífsleiðinni að komast í tæri við skatta og allt sem fylgir því, finnst mörgu þetta vera ákveðin tilætlunarsemi, að því beri skylda til að standa í skriffinnsku fyrir ríkið þegar allt kemur til alls. Ég fæ ekki betur séð en að eina ástæðan fyrir því að við höfum þetta svona sé sú að við kunnum enga aðra leið. Það er engin önnur augljós leið til að vita hverjar tekjur fólks eru nema þær séu gefnar upp. Sem betur fer höfum við farið þá leið gagnvart tekjuskatti einstaklinga að fólk sem eru launþegar hjá einhverjum vinnuveitanda þarf almennt ekki að pæla í því. Fyrirtækið pælir í þessu vegna þess að það hefur væntanlega einhverja yfirbyggingu sem gerir þetta auðveldara eða er minna hlutfall af kostnaðinum en væri fyrir einstaklinginn sjálfan. En samt ber einstaklingurinn alla ábyrgð á því. Mér hefur alltaf fundist það pínu skrýtið. Ég skil hvaðan þetta kemur upprunalega og hvers vegna og hvers vegna það þykir eflaust erfitt að breyta því hver ber ábyrgð á því að skattframtal launþegans sé rétt. En ef við værum að setja upp skattkerfið í dag tel ég óhugsandi að við myndum setja það upp svona. Ég hugsa að við myndum gera launagreiðandann ábyrgan fyrir því að það sé rétt frekar en launþegann. Ég hygg það. Út frá því hlýtur maður að velta fyrir sér hvort yfirvöld þurfi ekki svolítið að hafa það í huga, þegar þau heimta einhverjar upplýsingar eða einhverjar „skriffinnsku“ af borgaranum, að hið opinbera beri einhverja ábyrgð á því að auðvelda það a.m.k. fyrir launþegann (Forseti hringir.) og jafnvel vinna vinnuna sjálft.