ársreikningar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við komum hvor öðrum á óvart hér í dag, ég held ég geti tekið undir allt sem kom fram í ræðu þingmannsins. Íþyngjandi regluverk gagnvart einstaklingum virðist einhvern veginn ganga miklu auðveldlegar á færibandinu heldur en þegar reynt að vinda ofan af því síðar. Á undanförnum árum hefur náðst prýðilegur árangur undir hatti Skattsins, eins og það heitir í dag, að einfalda þetta fyrir einstaklinga. Upplýsingarnar berast frá launþega, frá bankastofnunum og ég held að mjög margir geti farið inn á vefinn og staðfest framtalið eins og það er lagt upp. Að því leyti hefur hið opinbera lagt sitt af mörkum til að einfalda einstaklingum regluverkið. Þetta hefur að einhverju marki gerst í fyrirtækjaumhverfinu líka með þessum takka, Hnappurinn held ég að það sé kallað. Það er valmöguleiki á netkerfi Skattsins. En þarna held ég að þurfi að ganga miklu lengra. Við eigum alls ekki að haga regluverkinu þannig að við séum að fjölga að óþörfu þeim litlu fyrirtækjum, sem á Íslandi eru kölluð millistór en eru örfyrirtæki í alþjóðlegu samhengi, sem þurfa að leggja í verulegan kostnað án þess að það skili í raun einhverjum ábata í rekstri þeirra eða til kúnnana eða í möguleikum þeirra á að keppa í verði. Virðisaukaskattsuppgjörið er til að mynda bara í sinni hefðbundnu rútínu á tveggja mánaða fresti. Það er kannski að stærstum hluta í tekjuskattsuppgjörinu sem fjárhagsleg samskipti fyrirtækja við hið opinbera eru eitthvað að breytast vegna þessarar uppgjöra. (Forseti hringir.)
Ég ítreka að við eigum alltaf að leita að einföldustu leiðinni, gera þetta í sem bestu flæði, (Forseti hringir.) þannig að fólk og fyrirtæki séu að eyða orku sinni og tíma í það sem það er best í.