Kría - sprota- og nýsköpunarsjóður.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa mjög mörg orð um þetta frumvarp sem ég hef stutt og talið gott og tel að hafi batnað í meðförum nefndarinnar og sé komið í nokkuð góðan búning. En það er tvennt sem mig langar að ræða. Annað varðar ekki frumvarpið sjálft nema með óbeinum hætti, þ.e. fjármögnun sjóðsins á þessu ári og til framtíðar. Sjóður af þessu tagi fær það verkefni að fjárfesta í vísisjóðum. Vísisjóðir eru þannig uppbyggðir að þeir starfa til lengri tíma. Þeir starfa í fimm til tíu ár, algengast í sjö til tíu ár. Þeir byrja að fjárfesta á fjárfestingartímabili og fylgja síðan fjárfestingum sínum eftir og draga á þau loforð sem fjárfestar hafa gefið sjóðunum um fjárframlög. Ég tel mjög brýnt að það komi mjög skýrt fram að búið sé þannig um hnúta að ríkið geti í gegnum þennan sjóð fylgt fjárfestingum eftir þannig að í fyrsta lagi sé aldrei neitt hik á því að til sé nægt fjármagn í sjóðnum til að sinna því að taka þátt í stofnun vísisjóða, og í öðru lagi sé ljóst að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar til langs tíma. Það er mjög mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir þessu eðli þegar við ræðum síðan fjármögnunarhluta þessa máls.
Hitt sem ég vildi minnast á sérstaklega er stjórnarfyrirkomulag sjóðsins. Sjóðurinn veitir fé sem ríkið leggur til og segja má að e.t.v. sé ekki óeðlilegt að ríkið fari þar með með stjórn sjóðsins. Hins vegar eru fjárfestingarnar mjög sérstaks eðlis. Þær krefjast sérkunnáttu og -þekkingar á þessum markaði og skilningi á nýsköpun. Þess vegna var gleðilegt að í meðförum nefndarinnar var hert á því og gerðar ríkari kröfur um sérþekkingu stjórnarmanna, sem er gríðarlega mikilvægt. Ég held að það sé líka rétt að leggja á það áherslu, af því að í rauninni er það ráðherra sem skipar alla stjórnina, að þess sé mjög vandlega gætt að í stjórnina veljist fjölhæft fólk sem er ríkulega búið þekkingu á þessu efni og þekkir þetta umhverfi mjög vel.
Þau sjónarmið eru uppi að annað sé óeðlilegt en að aðrir geti fengið tilnefningarrétt í sjóðinn og hefur helst verið nefnt að tiltekin samtök og/eða sérfræðingar úr háskólaumhverfinu ættu að eiga þarna sæti, þ.e. það væri tilnefningarréttur utan úr bæ. Það fyrirkomulag hefur bæði kosti og galla. Ég held að lendingin í frumvarpinu sé algerlega ásættanleg. Hins vegar er mjög mikilvægt varðandi þennan sjóð og svo margt annað sem ríkið er að fást við og fær fólk til að sinna, og þess vegna fann ég mig knúinn til að koma hérna upp, að þangað veljist hæft fólk og að reynt sé eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að upp komi sú staða að menn telji að einhvers konar pólitík sé í störfum sjóðs af þessu tagi. Það sem er hættulegast er að einhverjir kunni að vera stjórninni þóknanlegir og aðrir ekki á einhverjum forsendum sem ekki eiga heima undir sjóðnum.
Ég óttast það svo sem ekki sérstaklega en tel rétt að það sé sagt þannig að ráðherra hafi það í huga og stjórnin verði þannig valin að það bjóði ekki heim neinu vantrausti á að menn fari á svig við eðlilega stjórnarhætti og að fjárfest verði í þeim vísisjóðum sem til greina koma, á algerlega hlutlægum forsendum.
Ég taldi rétt að koma upp og tjá þessar hugsanir og skoðanir.