skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
Frumvarpið er hluti af innleiðingarferli tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins, svokallaðri BRRD tilskipun, og með því er meginefni hennar tekið upp í íslenskan rétt. Með frumvarpinu er lagt til að ný heildarlög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja taki gildi. Samkvæmt frumvarpinu verður framkvæmd laganna í höndum nýrrar stjórnvaldseiningar sem nefnist skilavald og verður aðgreind eining innan Seðlabanka Íslands.
Samkvæmt 1. mgr. 86. gr. frumvarpsins skal koma á fót fjármögnunarfyrirkomulagi sem nefnist skilasjóður og tekur skilavaldið ákvarðanir um greiðslur úr skilasjóði. Markmiðið með skilasjóði er að standa straum af kostnaði við skilameðferð og koma í veg fyrir að fjárþörf vegna hennar verði mætt með framlögum úr ríkissjóði. Samkvæmt 2. mgr. skal stærð skilasjóðs vera 1% af tryggðum innstæðum fyrir árslok 2027 sem nemur 8,5 milljörðum kr. sé tekið mið af tryggðum innstæðum í lok árs 2018.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði frumvarpsins skal skilasjóður vera deild innan Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta, svokallaðs TIF, og skal færa samtals 2,4 milljarða kr. úr innstæðudeild sjóðsins í skilasjóð árin 2020 og 2021. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að undirbúningur að því að hefja gjaldtöku í sjóðinn sé hafinn og að stefnt sé að því að gjaldtaka verði að fullu komin til framkvæmda að þessum tveimur árum liðnum. Gjaldskyldir aðilar verði nokkurn veginn þeir sömu og greiða iðgjald í TIF auk þess sem verðbréfafyrirtæki sem falli undir gildissvið frumvarpsins geti fallið þar undir.
Vert er að benda á að í umsögnum Arion banka og Samtaka fjármálafyrirtækja er m.a. fjallað um áformaða gjaldtöku í skilasjóð frá árinu 2022 í samhengi við sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, og aðrar opinberar álögur á fjármálafyrirtæki. Í umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja segir að hafa beri í huga að bæði sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki og fyrirhuguð gjaldtaka í skilasjóð leggist á skuldir fjármálafyrirtækja. Afstaða samtakanna sé sú að ekki komi til greina að þessar álögur leggist á samtímis.
Í minnisblaði til nefndarinnar benti fjármála- og efnahagsráðuneytið á að heildarstefnumörkun um skattheimtu og útgjöld ríkissjóðs fælist í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem gerð væri á hverju ári. Skattheimta viðskiptabanka skoðaðist í þessu heildarsamhengi á hverju ári og á grunni slíkrar stefnumörkunar hefði verið lögfest þrepaskipt lækkun á sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki. Þá hefðu iðgjöld í TIF verið lækkuð umtalsvert sl. haust.
Með lögum nr. 131/2019 voru gerðar breytingar á lögum um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, nr. 155/2010, þannig að gjaldhlutfall skattsins lækkaði úr 0,376% í 0,145% í þrepum á fjórum árum. Með 12. gr. laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 25/2020, var þrepaskipting lækkunarinnar afnumin þannig að gjaldhlutfall skattsins lækki þegar í stað í 0,145%.
Meiri hlutinn telur ljóst að áður en til gjaldtöku í skilasjóð kemur verði að grípa til mótvægisaðgerða enda má vera ljóst að auknar álögur bitna einkum á viðskiptavinum fjármálafyrirtækja, þ.e. neytendum og atvinnulífinu. Lækkun bankaskattsins er að þessu leyti jákvætt skref í þessu ljósi. Frekari lækkun eða endurskoðun á útfærslu bankaskatts gæti verið nauðsynleg samhliða nýrri gjaldtöku í skilasjóð auk þess sem endurskoða þarf iðgjöld í TIF, líkt og getið er í áðurnefndu minnisblaði ráðuneytisins.
Í umsögn Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. til nefndarinnar er lagt til að lánasjóðurinn verði undanþeginn gildissviði frumvarpsins. Í umsögninni er vísað til þess að með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar hafi hann verið sérstaklega felldur undan því að teljast til lánastofnunar samkvæmt regluverki ESB.
Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis til nefndarinnar kemur fram að samráð hafi verið haft við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti og Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands við mat á því hvort rétt væri að undanþiggja lánasjóðinn ákvæðum frumvarpsins. Niðurstaða þeirrar vinnu sé sú að ráðuneytið telji rétt að Lánasjóður sveitarfélaga ohf. og Byggðastofnun verði sérstaklega undanskilin gildissviði laganna samkvæmt 2. gr. Meiri hlutinn leggur til að við 2. gr. frumvarpsins bætist málsgrein þar sem þessir aðilar verða undanskildir gildissviðinu.
Í 5. gr. frumvarpsins er fjallað um hlutverk og verkefni ráðherra. Í 1. mgr. ákvæðisins kemur fram að ákvarðanir um samþykkt skilaáætlunar fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki verði ekki teknar nema að undangengnu samþykki ráðherra. Hið sama á við um ákvarðanir sem geta haft bein áhrif á ríkissjóð eða kerfislæg áhrif, þar með talið um niðurfærslu og umbreytingu fjármagnsgerninga samkvæmt IV. kafla frumvarpsins og skilameðferð fyrirtækis eða einingar samkvæmt 35. gr.
Í umsögn Seðlabanka Íslands um málið er vísað til ákvæðisins og útskýringar á því í greinargerð frumvarpsins. Þá kemur fram að bankinn telji ástæðulaust og óheppilegt að gera áskilnað um samþykki ráðherra fyrir ákvörðunum um samþykkt skilaáætlunar fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki. Af athugasemdum við 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins sé ljóst að ákvörðun um slíka skilaáætlun hafi hvorki kerfislæg áhrif né bein áhrif á ríkissjóð. Þá gangi áskilnaður um aðkomu ráðherra að þessum ákvörðunum framar lágmarkskröfum BRRD-tilskipunarinnar um staðfestingu ráðherra sem einskorðist við ákvarðanir sem hafa bein áhrif á ríkissjóð eða kerfislæg áhrif, samanber 6. mgr. 3. gr. tilskipunarinnar. Bankinn varar við því að of strangar kröfur um aðkomu ráðherra að þessu leyti geti sett ráðherra í erfiða stöðu, svo sem ef til þess kæmi að ráðherra vildi hafna ákvörðun um niðurfærslu eða umbreytingu fjármálagerninga, samanber IV. kafla frumvarpsins, sem byggð væri á skilaáætlun sem ráðherra hefði áður veitt sérstakt samþykki.
Meiri hlutinn hefur skilning á þeim sjónarmiðum sem koma fram í umsögn Seðlabankans og telur að sá upplýsingaréttur sem ráðherra er veittur í 3. mgr. 5. gr. frumvarpsins dugi til að tryggja að ráðherra hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum um ákvarðanir skilavaldsins, m.a. ákvarðanir um samþykkt skilaáætlunar fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki. Meiri hlutinn telur að hætta sé á að krafa um að ráðherra veiti sérstakt samþykki fyrir slíkum ákvörðunum geti valdið vandræðum og að krafan þjóni ekki tilgangi sem mæli með nauðsyn hennar. Leggur meiri hlutinn því til að breyting verði gerð á 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins og að krafan um að ráðherra samþykki ákvörðun um samþykkt skilaáætlunar fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki falli brott.
Ákvæði 94. gr. frumvarpsins varðar stjórnvaldssektir sem Seðlabanki Íslands getur lagt á einstaklinga eða lögaðila vegna brota gegn nánar tilgreindum ákvæðum. Í 2. mgr. er m.a. kveðið á um að sektir geti numið allt að 10% af heildarveltu samkvæmt síðasta samþykkta samstæðureikningi ef lögaðili er hluti af samstæðu og brot er framið til hagsbóta fyrir annan lögaðila í samstæðunni eða annar lögaðili í samstæðunni hefur notið hagnaðar af brotinu.
Í umsögn Fjármálaeftirlitsins er lagt til að viðbótarkrafan í tilviki samstæðna, um að annar lögaðili í samstæðu hafi notið hagnaðar af broti eða að brot hafi verið framið til hagsbóta fyrir annan lögaðila, falli brott enda þrengi hún sektarheimildina og hana sé ekki að finna í áðurnefndri tilskipun, þ.e. BRRD. Að höfðu samráði við ráðuneytið leggur meiri hlutinn til að breyting verði gerð á ákvæðinu í þessa veru.
Meiri hlutinn leggur einnig til breytingar á gildistökuákvæði frumvarpsins og dagsetningu í bráðabirgðaákvæði um hvenær fjármunir skuli færðir úr innstæðudeild Tryggingarsjóðs innstæðueigenda. Meiri hlutinn leggur til að í stað dagsetningarinnar 1. mars sl. verði miðað við 1. september og að gildistaka frumvarpsins miðist einnig við þann dag. Tekið verði fram að lögin komi til framkvæmda við greiðslu iðgjalds til A-deildar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á gjalddaga frá og með 1. september 2020. Með þessu er ljóst að útreikningur iðgjalds sem er á gjalddaga 1. september 2020 eða síðar skuli miðast við breytt regluverk þrátt fyrir viðmiðunartímabil gjalddaga samkvæmt 5. mgr. 5. gr. b laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þessum breytingum auk nokkurra annarra breytingartillagna sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.
Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Willum Þór Þórsson.