150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

tollalög.

609. mál
[17:33]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Brynjar Níelsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum. Hér er um að ræða að lagðar eru til breytingar sem ætlað er að auka skilvirkni við tollafgreiðslu annars vegar þannig að tollafgreiðslugengi taki mið af vikugengi í stað daggengis, og hins vegar með því að miða í auknum mæli að rafrænni tollafgreiðslu. Síðan er í 8. gr. frumvarpsins breyting um vöruvalsreglur fyrir tollfrjálsa áfengisverslun aðila í opinberri eigu, en þar er verið að bregðast við áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA sem fylgt var eftir með rökstuddu áliti stofnunarinnar 22. apríl sl.

Samkvæmt 16. gr. EES-samningsins er ríkjum innan EES heimilt að reka ríkiseinkasölur. En þau þurfa að tryggja að ríkisborgurum aðildarríkja EES sé ekki mismunað varðandi skilyrði til aðdrátta og markaðssetningar vara. Það er afstaða ESA að ákvæðið gildi ekki eingöngu þegar ríkið kemur beint að rekstri einkasölu heldur einnig þegar öðrum aðila er fengin heimild til að reka einkasölu, eins og í tilviki Fríhafnarinnar.

Hér komum við að miklum vanda varðandi áfengiseinkasölu. Þessi grein hefur verið gagnrýnd af gestum sem komu fyrir nefndina, m.a. frá Distu ehf., þess efnis að breytingin dugi ekki til að uppfylla skilyrði ESA um vöruvalsreglur. Þann 28. október 2018 sendi ESA Íslandi áminningarbréf þar sem fram kom að það væri mat ESA að Ísland bryti gegn 16. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið með því að heimila Fríhöfninni ehf. smásölu á áfengi án þess að tryggja með gagnsæjum hætti jafnræði milli heildsala við vöruval og markaðssetningu á áfengi sem þar er selt. Var það mat ESA að smásala Fríhafnarinnar væri ríkiseinkasala og því verði stjórnvöld að setja Fríhöfninni vöruvalsreglur og koma á fót kæruleið til að tryggja áfengisheildsölum möguleika á að fá ákvarðanir fyrirtækisins um innkaup endurskoðuð.

Hér erum við komin að kjarna málsins. Við erum með ríkiseinkasölu og svo erum við með einkarekstur Fríhafnarinnar, sem er einkahlutafélag, að vísu í opinberri eigu, til þess að selja áfengi. Þetta fer mjög illa saman. Það fer illa saman að hafa slíkt félag sem ekki þarf að fara eftir nákvæmlega sömu reglum og ÁTVR við einkasölu annars staðar. Fram komu fullgild rök í málinu um að frumvarpið næði hugsanlega ekki nógu langt til að tryggja þetta jafnræði. En hvað sem því líður er þetta frumvarp þó til mikilla bóta miðað við núgildandi reglur. Það verður að segjast að það er mjög sérstakt að einkahlutafélag eins og svo Fríhöfnin sé eins og hvert annað stjórnvald þar sem ákvarðanir þess eru kæranlegar til ráðherra. Þetta segir mér persónulega í hvers konar ógöngum ríkiseinkasala eða smásala á áfengi er í þessu landi. Það stenst illa þær reglur og EES-samninginn sem þar er þó að hann heimili ríkiseinkasölu með þessum miklu skilyrðum sem óvíst er hvort við uppfyllum nægilega með þessu frumvarpi. Þannig að smásala á áfengi í Fríhöfninni í eigu opinberra aðila þar sem ákvarðanir eru kærðar til ráðherra er einhvers konar bastarður sem ég held að sé ekki gott til framtíðar.

En hvað sem því líður er alveg augljóst að þetta frumvarp er til mikilla bóta miðað við núgildandi reglur. (SJS: Varan er góð …) — Hún er ekki síðri. Og hefur þó ræðumaður talsverða reynslu í þessu.

Hér er auðvitað bara breyting á efnislið þar sem c-lið 2. gr. er breytt. Það kemur fram í nefndarálitinu. En eins og menn hafa heyrt er engin sérstök gleði hjá framsögumanni málsins. Þess vegna var hann á þessu nefndaráliti með fyrirvara og ekki einn með fyrirvara heldur voru þingmennirnir Smári McCarthy, Jón Steindór Valdimarsson og Bryndís Haraldsdóttir einnig með fyrirvara við málið. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. En undir þetta rita Óli Björn Kárason, formaður nefndarinnar, Brynjar Níelsson framsögumaður, með fyrirvara, Jón Steindór Valdimarsson, með fyrirvara, Bryndís Haraldsdóttir, með fyrirvara, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy, með fyrirvara, og Willum Þór Þórsson.

Ég ætla að láta framsögu þessari lokið. Takk fyrir, forseti.