150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

tollalög.

609. mál
[17:44]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Mig langar að gera stuttlega grein fyrir mínum fyrirvara. Hann er mjög svipaður og annarra hv. þingmanna sem hafa tjáð sinn fyrirvara. Það verða sennilega að kallast ákveðin tíðindi þegar við hv. þm. Brynjar Níelsson erum sammála um eitthvað en það er bara jákvætt þegar það kemur fyrir. Ég vona að enginn fari á límingunum við þær fréttir. Hér er á ferðinni ágætisfrumvarp sem tekur á furðulegu vandamáli, að vísu ekki með nægilega afgerandi hætti en þó þannig að það er viðunandi og því er ég samþykkur frumvarpinu sem slíku.

Fyrirvari minn snýr að því að hér er á ferð plástur á stærra vandamál sem ekki hefur tekist að greiða úr með almennilegum hætti á sviði stjórnmálanna mjög lengi þrátt fyrir ágætistilraunir margra í gegnum tíðina, þ.e. hvernig hátta skuli skipulagi á sölu áfengis og þeirri einokunarverslun sem er stunduð á því. Fríhöfnin er í raun undantekning á annars algildri reglu um að smásala á áfengi fari eingöngu fram í vínbúðum ÁTVR. Þessi undantekning virðist í besta falli undarleg. Hún er þess háttar undantekning að maður neyðist til að spyrja sig hvort ekki eigi annaðhvort að uppræta hana eða gera hana algilda, þ.e. að leyfa hreinlega almenna smásölu á áfengi. Að skilja þetta eftir í limbói þar sem Fríhöfnin fær einhvers konar sérmeðferð er ekki jákvætt og helst myndi ég vilja að við færum alla leið og leyfðum t.d. öllum verslunum innan fríhafnarsvæðisins að stunda smásölu, en ekki bara einni sem skekkir samkeppnisstöðuna, eða hreinlega að gera þetta á landinu öllu.

Ég veit að með því að minnast á þetta hætti ég á mikla umræðu. Ég ætla ekki að reyna að efna til hennar enda klukkan orðin margt á föstudegi en við verðum á einhverjum tímapunkti að klára þessa umræðu og í öllu falli að hætta að leyfa að hún sé notuð trekk í trekk til þess að búa til einhvers konar kergju og ágreining í staðinn fyrir að leita að lausninni. Ég held að lausnin sé klár. Flest lönd heims hafa komist að henni með sjálfstæðum hætti. Við gætum kannski náð því líka ef við reyndum.