opinber fjármál.
Virðulegur forseti. Já, það er óvissa, enginn neitar því. En þegar óvissa er fyrir hendi er enginn betri en hið opinbera, stjórnvöld, til að stíga fram og eyða óvissu. Með því t.d. að leggja fram fjármálastefnu geta stjórnvöld eytt óvissunni og þar af leiðandi búið til þessa hringrás upp á nýtt. Þau geta búið til þá festu og þann stöðugleika sem þarf til að vinna okkur út úr óvissunni. Það gefur augaleið að við þurfum þá að hugsa rosalega vel um hvenær efnahagslegar forsendur eru í rauninni það slæmar og óvissar að hlutverk hins opinbera í hagkerfinu sé ekki bara viðhalda þeim grunngildum sem þar er fjallað um heldur að stofna til þeirra. Kannski vantar það, það getur vel verið. En mér finnst það gefa augaleið að þetta eru skilyrði sem við þurfum að vinna að. Og þegar okkur er ekki sagt að við getum sett fjármálastefnu að þessum skilyrðum uppfylltum þá er þingið skilið eftir í lausu lofti, ekki bara varðandi aðhald með framkvæmd fjárlaga og hvernig farið er með ákveðnar stærðir af lánum og fleira í hagkerfinu o.s.frv., heldur líka gagnvart því að stjórnvöld grípi tækifærið um leið og færi gefst til að leggja fram fjármálastefnu af því að kominn er grundvöllur til þess. En við vitum ekki hver þessi skilyrði eru, það á bara að koma í ljós einhvern tímann í september og fjármálaráð segir að við höfum í rauninni ekki hugmynd um hvort óvissan verði eitthvað minni þá.