opinber fjármál.
Hæstv. forseti. Eins og fram kom í mínu fyrra andsvari hef ég mikið umburðarlyndi fyrir þessum sjónarmiðum og ég tel það mikilvægt sem fram kom hjá hv. þingmanni. Ég held að varðandi gagnsæið, svo ég komi að því, hafi ég svarað býsna skýrt, að forsendur fyrir þessari frestun séu málefnalegar, skýrar og nægjanlegar, eins og fram kemur í áliti meiri hluta og ég fór yfir í framsögu.
Varðandi gagnsæið er það mjög mikilvægt, og fjármálaráð dregur það fram og maður les það líka í skýrslum frá OECD, að á öllum þeim aðgerðum sem við verðum að fara í, á mótvægisaðgerðunum til að styðja við atvinnulíf og heimili, að það sé fullt gagnsæi á öllum þeim aðgerðum. Samkvæmt upplýsingum mínum er hópur að störfum m.a. við að draga saman allar þessar aðgerðir og hverju þær eiga að skila. En við höfum líka verið dugleg hér í þinginu við að kalla fram og tala um mikilvægi gagnsæis. Vonandi gengur það eftir. Ég held að við höfum lagt okkur fram við það. Við getum auðvitað rætt endalaust um hversu mikið óvissustigið þurfi að vera til að það sé óraunhæft að byggja upp stefnu. En í lögunum, til að mynda í 10. gr., er aðeins skrifað um hvaða ferli við viljum að fari í gang þótt óljóst sé. Það þarf að skrifa það svolítið betur inn í lögin, ég tek undir það með hv. þingmanni. En það er mikil áskorun fram undan þegar við undirbúum stefnu og fjármálaáætlun, að finna jafnvægi á milli þess að vaxa út úr þessum ógöngum og passa að skuldir hins opinbera fari ekki yfir hættumörk.